Tvíeyki Lakers fór á kostum

LeBron James og Anthony Davis skoruðu samtals 70 stig í …
LeBron James og Anthony Davis skoruðu samtals 70 stig í nótt. AFP

Þeir Anthony Davis og LeBron James, stjörnuleikmenn Los Angeles Lakers, í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik fóru á kostum þegar liðið vann tuttugasta leik á tímabilinu á útivelli gegn Portland Trail Blazers. Leiknum lauk með 136:113-sigri Lakers en Anthony Davis skoraði 39 stig og tók níu fráköst. 

LeBron var engu síðri og skoraði 31 stig, tók sjö fráköst og gaf átta stoðsendingar en Lakers er sem fyrr á toppi Vesturdeildarinnar með 20 sigri og þrjú töp. Boston Celtics sem vann 108:95-heimasigur gegn Denver Nuggets er í öðru sæti Austudeildarinnar með sextán sigra og fimm töp.

Topplið Vesturdeildarinnar hélt uppteknum hætti og lagði meistaraefnin í LA Clippers á heimavelli, 119:91. Grikkinn Giannis Antetokounmpo var sem fyrr stórtækur í liði Bucks með tvöfalda tvennu, 27 stig og ellefu fráköst. Bucks eru á toppi Austurdeildarinnar með 20 sigra og þrjú töp eftir 23 leiki.

Úrslit næturinnar í NBA:

Charlotte Hornets 104:111 Brooklyn Nets
Cleceland Cavaliers 87:93 Orlando Magic
Detroit Pistons 108:101 Indiana Pacers
Boston Celtics 108:95 Denver Nuggets
Miami Heat 112:103 Washington Wizards
Chicago Bulls 98:100 Golden State Warriors
Oklahoma City Thunder 139:127 Minnesota Timberwolves
Milwaukee Bucks 119:91 LA Clippers
San Antonio Spurs 105:104 Sacramento Kings
Portland Trail Blazers 113:136 Los Angeles Lakers

Giannis Antetokounmpo og liðsfélagar hans í Milwaukee Bucks eru á …
Giannis Antetokounmpo og liðsfélagar hans í Milwaukee Bucks eru á toppi Austurdeildarinnar. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert