Valur og Haukar af öryggi í undanúrslit

Valur og Haukar eru komin í undanúrslit.
Valur og Haukar eru komin í undanúrslit. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Valur og Haukar verða í Laugardalshöllinni þegar undanúrslit Geysisbikars kvenna í körfubolta fara fram, en þau unnu örugga sigra í átta liða úrslitum í kvöld. 

Ríkjandi bikarmeistarar Vals unnu sannfærandi 89:59-sigur á Breiðbliki á heimavelli. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru Valskonur miklu sterkari í seinni hálfleiknum og sérstaklega í fjórða leikhluta, en hann vann Valur 34:12. 

Dagbjört Dögg Karlsdóttir og Helena Sverrisdóttir skoruðu 23 stig hvor fyrir Val, eins og Danni Williams fyrir Breiðablik. 

Haukar áttu ekki í neinum vandræðum með að vinna Grindavík á heimavelli, 81:54. Staðan í hálfleik var 50:22 og voru Grindvíkingar ekki líklegir til að jafna í seinni hálfleik. 

Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 24 stig fyrir Hauka og Lovísa Björt Henningsdóttir gerði 17 stig. Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 13 fyrir Grindavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert