Í Njarðvík næstu tvö árin

Mario Matasovic í leik með Njarðvík.
Mario Matasovic í leik með Njarðvík. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Króatíski körfuknattleiksmaðurinn Mario Matasovic hefur gert nýjan tveggja ára samning við Njarðvík. Matasovic, sem hefur þegar hefur leiktíð tvö tímabil í Njarðvík, átti öflugt tímabil og var tíundi framlagshæsti leikmaður deildarinnar þegar keppni var blásin af.

Matasovic er mikilvægur hlekkur í Njarðvíkurliðinu en hann var með 14,4 stig og 9,8 fráköst að meðaltali í leik og 21,6 framlagspunkta að jafnaði á leiktíðinni.

„Við erum afar ánægð með að hafa Mario með okkur næstu tvö árin en hann hefur fyrir löngu unnið hug okkar og hjarta í Njarðvík með framgöngu sinni inni á vellinum og ekki skemmir nú fyrir að hann er fyrirmyndareintak í alla staði,“ sagði Brenton Birmingham, varaformaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, á heimasíðu félagsins þegar nýr samningur við Mario var undirritaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert