Valur fær þrjá nýja leikmenn

Ólafur Jónas Sigurðsson, Eydís Eva Þórisdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og …
Ólafur Jónas Sigurðsson, Eydís Eva Þórisdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Auður Íris Ólafsdóttir. Ljósmynd/Valur

Körfuknattleiksdeild Vals hefur samið við þrjá leikmenn um að leika með kvennaliði félagsins á næsta tímabili. Auður Íris Ólafsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Eydís Eva Þórisdóttir hafa allar samið við Hlíðarendafélagið. 

Auður Íris er uppalin í Haukum og er reynslumikill bakvörður. Frá því hún kom í meistaraflokk hefur hún lengst af leikið með uppeldisfélagi sínu en frá 2016 hefur hún einnig leikið með Breiðabliki, Stjörnunni og ÍR. Auður á 11 leiki með A-landsliði Íslands.

Jóhanna Björk er reynslumikill framherji sem hóf feril sinn hjá Hamri en hefur á ferlinum m.a. leikið með KR, Haukum, Breiðabliki og Stjörnunni. Hún á auk þess 12 leiki með A-landsliði Íslands.

Eydís Eva er 20 ára bakvörður sem lék alla yngri flokkana í Keflavík og hefur verið viðloðandi meistaraflokkinn þar síðastliðin tímabil. Hún hefur leikið með yngri landsliðum Íslands nú síðast með U-20 á Evrópumótinu í Kósóvó síðasta sumar.

„Eydís leggur hart að sér og er dugleg að æfa sem hefur sýnt sig á vellinum. Síðasta tímabil spilaði hún gríðarlega vel í 1. deildinni og sýndi að hún er fjölhæfur leikmaður sem leggur sig fram bæði í vörn og sókn. Hún kemur til með að styrkja hópinn og auka breiddina í liðinu til muna.

Auður er frábær liðsmaður og fjölhæfur leikmaður. Hún spilar hörku vörn og svo getur hún spilað nokkrar stöður á vellinum. Auður er reynslumikil og þekkir að vera í toppbaráttu og kemur til með að styrkja hópinn og hjálpa okkur í baráttunni í vetur.

Jóhanna er hörkudugleg og gefur aldrei tommu eftir inni á vellinum. Hún er frábær varnarmaður og frákastari og orkumikill leikmaður sem hefur smitandi áhrif á samherja sina. Þetta er leikmaður sem gerir það sem þarf fyrir liðið sitt hvað sem það er. Hún mun hjálpa okkur mikið í vetur enda með mikla reynslu úr efstu deild og toppbaráttu,“ er haft eftir Ólafi Jónasi Sigurðssyni þjálfara Vals í yfirlýsingu félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert