Bandarískur leikstjórnandi í Breiðablik

Jessie Loera.
Jessie Loera. Ljósmynd/aðsend

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur samið við bandaríska leikstjórnandann Jessie Loera um að leika með liðinu á Íslandsmóti kvenna í körfuknattleik í vetur. Félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni í gær.

Loera er 23 ára gömul og kemur til Kópavogsliðsins frá háskóla í Washington í Bandaríkjunum, Þar skoraði hún að meðaltali 7,5 stig og tók 4,8 stoðsendingar í leik en hún þykir góð þriggja stiga skytta.

Úrvalsdeild kvenna á að hefjast 23. september og fá Blikar ærið verkefni í fyrstu umferð, taka á móti Íslandsmeisturum Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert