Portúgalski körfuknattleiksmaðurinn Miguel Cardoso er genginn til liðs við Val en félagið segir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Cardoso er 27 ára leikstjórnandi en hann lék með spænska liðinu CB Almansa í B-deildinni á síðustu leiktíð. Hann hefur verið viðloðandi portúgalska landsliðið undanfarin ár og spilaði meðal annars gegn Íslandi í forkeppni EM karla í körfubolta.