Erlendir leikmenn yfirgefa Njarðvík

Ryan Montgomery í leiknum gegn KR.
Ryan Montgomery í leiknum gegn KR. mbl.is/Arnþór Birkisson

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur sagt upp samningum við Zvonko Biljan og Ryan Montgomery og munu þeir því ekki leika með liðinu þegar tímabilið fer af stað á nýjan leik.

Karfan.is greinir frá að leikmennirnir hafi átt frumkvæðið að uppsögnunum.

Léku þeir Biljan og Montgomery einn leik fyrir Njarðvík, en Suðurnesjaliðið vann 92:80-sigur á KR í 1. umferð Dominos-deildarinnar þann 1. október, áður en öllu íþróttahaldi hér á landi var frestað.

Zvonko Buljan
Zvonko Buljan mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert