Góður leikur Elvars dugði ekki til

Elvar Már Friðriksson
Elvar Már Friðriksson Ljósmynd/LKL

Elv­ar Már Friðriks­son og sam­herj­ar hans í Siauliai unnu 88:77-sigur á Neptunas í síðari leik liðanna í fjórðungsúrslitum bikarkeppninnar í Litháen en eru engu að síður úr leik eftir að hafa tapað fyrri leiknum á heimavelli 91:76.

Liðið átti erfitt verkefni fyrir höndum í dag en vann reyndar upp enn stærra forskot í 16-liða úrslitunum. Það tókst þó ekki í dag þrátt fyrir sigur en Elvar var drjúgur fyrir sitt lið, skoraði níu stig, gaf átta stoðsendingar og tók þrjú fráköst á þeim rúmlega hálftíma sem hann spilaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert