Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson lék vel fyrir Fraport Skyliners í 72:80-tapi fyrir Wurzburg í efstu deild Þýskalands í körfubolta í dag.
Jón Axel skoraði 21 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á 37 mínútum og fékk því aðeins þrjár mínútur í hvíld.
Fraport, sem er frá Frankfurt, er í níunda sæti deildarinnar af 18 liðum með fimm sigra og stjö töp.