Mataði liðsfélaga sína í langþráðum sigri

Elvar Már Friðriksson var duglegur að mata liðsfélaga sína.
Elvar Már Friðriksson var duglegur að mata liðsfélaga sína. Ljósmynd/FIBA

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson og samherjar hans í Siauliau höfðu betur gegn Pieno Zvaigzdés á útivelli í efstu deild Litháens í körfubolta í dag, 88:70. 

Sigurinn var kærkominn fyrir Elvar og félaga eftir fimm töp í röð. Elvar skoraði sjö stig, gaf ellefu stoðsendingar og tók eitt frákast á 33 mínútum. 

Þrátt fyrir sigurinn er Siauliau í botnsætinu með sex sigra og sextán töp eftir 22 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert