Bjóst við liðinu tilbúnara til leiks

Pétur Már Sigurðsson þjálfari Vestra var fámáll eftir leik sinna manna gegn Njarðvíkingum í kvöld. Lið hans náði aldrei takti í kvöld og fannst honum liðið í raun gefa eftir full snemma í leiknum.

Hluta af því tók Pétur á sig þar sem fljótlega hafi hann gerst sekur um að fara að tuða í dómaratríó kvöldsins. 

Pétur sagði sína menn hafa átt fínar æfingar í landsleikjahléinu og bjóst við liðinu tilbúnara til leiks en sagðist eiga eftir að fara yfir þetta allt með sínum mönnum og laga það sem væri að. 

Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Vestra.
Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Vestra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert