Leik á Ásvöllum frestað vegna gruns um smit

Emil Barja og félagar í Haukum áttu að mæta Selfyssingum …
Emil Barja og félagar í Haukum áttu að mæta Selfyssingum í kvöld. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Ekkert verður af leik Hauka og Selfoss í 1. deild karla í körfuknattleik sem fram átti að fara á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem upp kom grunur um kórónuveirusmit í leikmannahópi Selfyssinga.

Samkvæmt tilkynningu KKÍ var leiknum frestað þar til niðurstöður úr PCR-prófum liggja fyrir. Komi í ljós að Selfyssingar séu leikfærir verður leiki á Ásvöllum á laugardaginn klukkan 15.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert