Ég var alltaf gaurinn sem drakk ekki

„Ég var duglegur að mæta í partí hjá vinunum,“ sagði Brynjar Þór Björnsson, fyrrverandi fyrirliði karlaliðs KR í körfuknattleik, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.

Brynjar Þór, sem er 34 ára gamall, varð átta sinnum Íslandsmeistari með KR og þrívegis bikarmeistari með liðinu.

Hann stundaði nám við Menntaskólann við Sund á sínum yngri árum en skólinn var og er þekktur fyrir mikið og gott félagslíf.

„Ég var mjög einbeittur á körfuboltann þarna þannig að ég var alltaf gaurinn sem drakk ekki,“ sagði Brynjar Þór.

„Þetta var ekkert mál ef maður var í partíinu frá byrjun en eins og flestir þekkja er erfitt að koma inn í eitthvað partí þegar allir eru orðnir hauslausir,“ sagði Brynjar meðal annars.

Viðtalið við Brynjar Þór í heild sinni má nálgast með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert