Heil umferð í körfunni í kvöld

Helena Sverrisdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Elísabeth Ýr Ægisdóttir í …
Helena Sverrisdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Elísabeth Ýr Ægisdóttir í leik Hauka og Vals á síðasta tímabili. mbl.is/Árni Sæberg

Önnur umferð úrvalsdeildar kvenna fer fram í heild sinni í kvöld þegar fjórir leikir fara fram.

Íslandsmeistarar Njarðvíkur fá nágranna sína í Grindavík í heimsókn og munu freista þess að vinna sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu.

Breiðablik, sem steinlá fyrir Val í fyrstu umferð, fær Keflavík, sem skellti Njarðvík í þeirri umferð, í heimsókn í Kópavog.

Nýliðar ÍR, sem steinlágu fyrir Haukum í fyrstu umferð, fá Fjölni í heimsókn í Breiðholt þar sem bæði lið freista þess að vinna sinn fyrsta leik á tímabilinu.

Stórleikur kvöldsins fer þá fram í Ólafssal á Ásvöllum þar sem Haukar taka á móti Val.

Leikir kvöldsins:

Njarðvík - Grindavík klukkan 18.15

Breiðablik - Keflavík klukkan 19.15

ÍR - Fjölnir klukkan 19.15

Haukar - Valur klukkan 20.15

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert