Vann tvo bikarmeistaratitla í dag

Finnur Atli á fullri ferð með Val á síðustu leiktíð.
Finnur Atli á fullri ferð með Val á síðustu leiktíð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Finnur Atli Magnússon varð í dag tvöfaldur bikarmeistari en hann er styrktarþjálfari bæði bikarmeistara Hauka í kvennaflokki og Vals í karlaflokki. Finnur er eiginmaður Helenu Sverrisdóttur, leikmanns Hauka.

Helena Sverrisdóttir (til vinstri) kyssir bikarinn í dag.
Helena Sverrisdóttir (til vinstri) kyssir bikarinn í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Hvernig er tilfinningin að vera tvöfaldur bikarmeistari?

„Þetta er mjög skemmtilegt. Það er alltaf gaman í svona leikjum og hvernig sem þeir fara eru þeir mikil upplifun og geggjað fjör“

Hvernig upplifir þú þetta sem gamall jaxl í boltanum?

„Það er gaman að fá að vera í kringum liðið og fá að fara inn í klefa með strákunum og fagna sigrunum með þeim. Síðan fæ ég aðeins að láta þá taka á því í ræktinni svo þetta er „win-win“ fyrir mig.“

Finnur Atli fagnar með Val í dag.
Finnur Atli fagnar með Val í dag. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert