Elvar og félagar jöfnuðu metin

Elvar Már Friðriksson í leik með Rytas fyrr á tímabilinu.
Elvar Már Friðriksson í leik með Rytas fyrr á tímabilinu. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar hans í Rytas Vilnius jöfnuðu metin í úrslitaeinvígi sínu gegn Zalgiris Kaunas um lit­háíska meist­ara­titil­inn með 94:71-sigri í dag.

Elvar skoraði fjögur stig, tók eitt frákast og gaf fimm stoðsendingar á 22. mínútum. 

Næsti leikur liðanna fer fram sjötta júní en staðan er 1:1 í einvíginu. Þrjá sigra þarf til að tryggja sér meist­ara­titil­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert