Drjúgur en dugði ekki

Elvar Már Friðriksson og félagar máttu þola tap í oddaleiknum.
Elvar Már Friðriksson og félagar máttu þola tap í oddaleiknum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar hans í Rytas Vilníus mátti þola tíu stiga tap, 97:87, fyrir Zalgiris Kaunas í oddaleik liðanna um litháíska meistaratitilinn í körfuknattleik í dag. Zalgiris er því meistari. 

Þrátt fyrir tapið átti Elvar fínasta leik en hann skoraði 13 stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á aðeins 17. mínútum spiluðum. 

Jafnræði var á milli liðanna fyrstu þrjá leikhlutana og var staðan 70:69 fyrir Zalgiris að þriðja leikhluta loknum. Í þeim fjórðu voru þó heimamenn mun sterkari aðilinn, unnu hann 27:18, og samtals 97:87.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert