Körfuknattleikslið Njarðvíkur hefur rift samningnum við Julius Brown sem gekk til liðs við félagið í sumar. Brown stóð ekki undir væntingum.
Brown gekk til liðs við Njarðvík í ágúst og hefur leikið þrjá æfingaleiki með liðinu en Njarðvík mun ná í annan erlendan leikmann til að fylla skarð Brown samkvæmt karfan.is.
Njarðvík hafnaði í fjórða sæti úrvalsdeildar karla í fyrra en féll úr keppni í undanúrslitum gegn Val í oddaleik.