Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá samningi við Bandaríkjamanninn Khalil Shabazz og mun hann leika með liðinu á komandi leiktíð.
Shabazz lék síðast með Baliksehir í Tyrklandi og skoraði 17 stig og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í leik.
Hann kemur í staðinn fyrir Julius Brown, en Brown stóð ekki undir væntingum Njarðvíkinga og var tilkynnt um brotthvarf hans frá félaginu fyrr í dag.