Stjarnan styrkir sig

Maria-Magdalena Kolyandrova er komin í Stjörnuna.
Maria-Magdalena Kolyandrova er komin í Stjörnuna. Ljósmynd/Stjarnan

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningi við hina búlgörsku Mariu-Magdalenu Kolyandrovu og mun hún spila með liðinu á komandi leiktíð.

Hún er reynslumikill leikstjórnandi sem hefur leikið í Danmörku, Belgíu, Spáni, Þýskalandi og nú síðast Austurríki.

Stjarnan var nýliði í efstu deild á síðustu leiktíð en fór þrátt fyrir það alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem liðið tapaði fyrir verðandi meisturum Keflavíkur í oddaleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert