Körfuknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að segja samningi litháíska Arvydas Gydra upp, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann samdi við félagið.
Karfan greinir frá.
Gydra, sem er 205 sentimetrar á hæð og 34 ára gamall, kom frá Flyers Wels í Austurríki um miðjan júlí og hefur æft og leikið með Haukum í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil.
Nú er hins vegar ljóst að Litháinn leikur ekki með liðinu á tímabilinu.