Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gert breytingar á liði sínu fyrir komandi tímabil, en liðið verður nýliði í efstu deild í vetur.
Þær Randi Brown og Melissa Diawakana hafa samið við félagið í stað þeirra Shaniya Jones og Lauru Chahrour. Jones yfirgaf félagið á meðan Chahrour hættir vegna hnémeiðsla.
Randi Brown þekkir íslensku deildina ágætlega því hún lék með Haukum tímabilið 2019/20. Hún lék síðast í Finnlandi. Diawakana lék síðast í Slóvakíu.