Jón Ásgeir ekki í sömu deild lengur

Jón Ásgeir Jóhannesson segist ekki vera lengur í sömu deild …
Jón Ásgeir Jóhannesson segist ekki vera lengur í sömu deild fjármagnslega og áður. mbl.is/Kristinn

Breska blaðið Financial Times fjallar um endurkomu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í breskt viðskiptalíf í dag. Ræðir blaðið við hann um kaupin á fjórðungshlut í keðjunni Muddy Boots og þau dómsmál sem eru gegn honum hér á landi. Hann segir að núna sé hann ekki lengur í sömu deild þegar komi að fjárfestingamagni og áður, en að Ingibjörg konan hans fjármagni kaupin úr sínum eigin sjóðum.

Jón ítrekar í viðtalinu sakleysi sitt og segir að fólk á Íslandi trúi því enn að kreppan hafi aðeins gerst hér á landi. „Fólk vill sjá snögga hengingu“ segir hann og líkir stöðu sinni við þá þegar samverkamenn nasista í Noregi voru dæmdir til dauða.

Viðtalið má lesa í heild hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK