Páll tekur við sem sviðsstjóri hjá Regin

Páll V. Bjarnason hefur tekið við sem sviðsstjóri fasteignaumsýslu Regins.
Páll V. Bjarnason hefur tekið við sem sviðsstjóri fasteignaumsýslu Regins.

Þær breytingar hafa orðið innan Regins að Páll V. Bjarnason hefur tekið við sem sviðsstjóri fasteignaumsýslu félagsins. Verksvið fasteignaumsýslu er yfirumsjón með fasteignum félagsins, rekstri, viðhaldi og endurnýjun. Ennfremur að annast móttöku eigna og koma þeim í leiguhæft ástand.

Páll er 32 ára, með M.Sc. í byggingaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, bygginga-tæknifræðingur frá sama skóla og húsasmíðameistari. Páll hefur starfað hjá Reginn síðan 2010.

Kristinn Jóhannesson fráfarandi sviðsstjóri mun fara í sérstök verkefni innan Regins, en þau helstu eru tengd uppfærslu og breytingum í Smáralind, sem framundan eru á árunum 2014 til 2016 sem og umhverfis- og orkumál innan samstæðunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK