Framkvæmdir á Valssvæðinu við Hlíðarenda hefjast á næstu dögum að sögn Brynjars Harðarsonar, framkvæmdastjóra Valsmanna hf. Fyrst verður lagður framkvæmdavegur milli íþrótta- og byggingarsvæðisins.
Brynjar segir að nú eigi einungis eftir að ganga frá samningum við GT verktaka sem urðu fyrir valinu í útboði á verkinu. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki um sex ár og heildarkostnaðurinn verði á bilinu 25 til 30 milljarðar króna. Brynjar sagði á dögunum í samtali við mbl að fjármögnunin væri fjölþætt og að þegar hefði náðst samstarf við íslenska fagfjárfesta.
Valsmenn hf. er í 40% eigu Knattspyrnufélagsins Vals auk rúmlega 400 einstaklinga sem saman eiga 60% hlut. Valsmenn keyptu byggingarlandið á Hlíðarenda hinn 11. maí 2005 á 872 milljónir króna af Reykjavíkurborg.
Á öllu Hlíðarendasvæðinu má búast við allt að 800 til 850 íbúðum, en um 200 þeirra verða svokallaðar stúdentaeiningar og til útleigu fyrir námsmenn. Byrjað verður á framkvæmdum við um 600 íbúðir en helmingur þeirra verður tveggja herbergja og rúmur fimmtungur þriggja herbergja.
Samhliða uppbyggingunni verður ráðist í breytingar á íþróttasvæði Vals á Hlíðarenda, með tilfærslu á gervigrasvelli, fjölgun æfingavalla og byggingu knatthúss í hálfri stærð.
Frétt mbl.is: Áherslan á smærri íbúðir við Hlíðarenda
Frétt mbl.is: Íbúðir á svæðinu gætu orðið allt að 850
Frétt mbl.is: Mun gjörbreyta fjárhag Vals