Kannanir sýna að um fimmtungur aðspurða þolir ekki nýjar KFC auglýsingar með Colonel Sanders í aðalhlutverki.
Líkt og mbl hefur áður greint frá kallaði KFC Colonel Sanders, stofnanda og andlit skyndibitastaðarins, aftur til starfa eftir 21 árs hlé. Hann leikur í auglýsingunum í tilefni þess að 75 ár eru síðan kjúklingauppskriftin gómsæta var fundin upp.
Samkvæmt Greg Creed, forstjóra Yum!, móðurfélags KFC, eru viðbrögðin við auglýsingunum 80% jákvæð en 20% aðspurðra hata þær. Creed segir það hins vegar vera góðar fréttir fyrir KFC.
Það sé vegna þess að fólk sé að minnsta kosti að tala um fyrirtækið og standi ekki á sama.
Markaðshlutdeild KFC hefur dregist mikið saman á síðustu árum og sérstaklega meðal yngri kynslóða þar sem kannanir sýna að um 60 prósent Bandaríkjamanna sem eru fæddir eftir árið 2000 hafi ekki einu sinni borðað á staðnum.
Skyndibitastaðurinn Chick-fil-A hefur tekið sæti vinsælasta kjúklingastaðar Bandaríkjanna og var með mun hærri sölutölur en KFC á síðasta ári þrátt fyrir að útibúin séu langtum færri.
Um 1.900 Chick-fil-A staðir eru í Bandaríkjunum og sala þeirra nam um sex milljörðum dollara á síðasta ári. KFC er aftur á móti með 4.800 staði og salan nam um 4,2 milljörðum dollara.
Í auglýsingunum bregður Darrell Hammond, sem er þekktur úr grínþáttunum Saturday Night Live, sér í gervi Colonel Sanders. „KFC borgar mér í kjúklingum,“ var haft eftir Hammond í tilkynningu vegna þessa.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/Dh2rHsxYh6U" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>