Facebook ætlar að setja upp nýjar höfuðstöðvar í Lundúnum á næsta ári og bæta við 500 starfsmönnum.
Samkvæmt fréttatilkynningu Facebook munu 1.500 starfa hjá fyrirtækinu í Bretlandi eftir breytingarnar en Bretland sé eitt besta landið fyrir tæknifyrirtæki að starfa á.
Fréttirnar um stækkun Facebook í Bretlandi koma í kjölfar fregna um að Google er að bæta við sig þar og búast megi við því að um 3 þúsund ný störf verði til hjá Google í Lundúnum.
Nicola Mendelsohn, sem er aðstoðarframkvæmdastjóri Facebook í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku, segir að Bretland sé mjög mikilvægt í starfsemi Facebook og skipi merkilegan sess í sögu fyrirtækisins. „Þegar við komum til Lundúna árið 2007 var hægt að telja starfsmennina á fingrum annarrar handar en í lok næsta árs verðum við komin með nýjar höfuðstöðvar og áætlun um 1.500 starfsmenn,“ segir Mendelsohn.
Nýja skrifstofan verður í Fitzrovia-hverfinu í miðborginni og eru framkvæmdir í fullum gangi. Borgarstjórinn í Lundúnum, Sadiq Khan, fagnar áformum Facebook og segir þau sýna styrk Lundúna sem tæknimiðstöð.