Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, hefur tekið sæti í stjórn Landsvirkjunar, en fjármála- og efnahagsráðherra skipaði nýja stjórn fyrirtækisins á aðalfundi í dag. Auk Ragnheiðar koma þau Haraldur Flosi Tryggvason og Kristín Vala Ragnarsdóttir ný inn í stjórnina.
Samkvæmt tilkynningu frá Landsvirkjun er þetta í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins sem konur eru í meirihluta stjórnar, en þær eru nú þrjár á móti tveimur karlmönnum.
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru nú:
Úr stjórn fóru Jón Björn Hákonarson, Helgi Jóhannesson og Þórunn Sveinbjarnardóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2014. Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru: Ásta Björg Pálmadóttir, Páley Borgþórsdóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Óskarsson og Albert Svan Sigurðsson.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Haraldur Flosi Tryggvason var kjörinn varaformaður.