Icelandair hefur flug til San Francisco

Flogið verður til San Francisco fjórum sinnum í viku frá …
Flogið verður til San Francisco fjórum sinnum í viku frá 1. júní inn í október á Boeing 767-breiðþotu. mbl.is/Árni Sæberg

Icelandair hefur ákveðið að hefja flug til San Francisco í vor, en borgin er 23. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá 1. júní inn í október á Boeing 767-breiðþotu og er sala farseðla þegar hafin. Alls flýgur Icelandair til sex nýrra áfangastaða, Cleveland, Dallas, Kansas City, Baltimore og San Francisco í Bandaríkjunum og Dublin á Írlandi á árinu 2018. Þetta segir í tilkynningu frá Icelandair.

San Francisco er þriðja nýja borgin sem Icelandair kynnir á jafnmörgum dögum í þessari viku í tengslum við markaðssókn í Bandaríkjunum. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, segir þessa ólíku áfangastaði undirstrika hina miklu breidd í leiðakerfi og þjónustu fyrirtækisins.

„San Francisco opnar nýja leið inn á hinn risastóra Kaliforníumarkað á vesturströndinni og flug á Baltimore-flugvöll styrkir stöðu okkar á Washington/Baltimore-svæðinu á austurströndinni. Kansas City, stór borg í miðjum Bandaríkjunum, opnar svo áður lokaða markaði fyrir íslenska ferðaþjónustu og tengiflug okkar til og frá Evrópu. Jafnframt þessari auknu þjónustu við nýjar borgir þá færum við framboð af nokkrum öðrum áfangastöðum þannig að heildarflugframboð Icelandair 2018 er það sama og áður hefur verið kynnt, en við aukum með þessu hagkvæmni leiðakerfisins og styrkjum samkeppnisstöðu félagsins,“ segir Björgólfur.

San Francisco, sem var í leiðakerfi Icelandair í tvö sumur fyrir rúmum áratug, er ein þekktasta og vinsælasta ferðamannaborg í heimi og jafnframt ein af fjölmennustu borgum Bandaríkjanna með um 9 milljónir íbúa á San Francisco Bay Area-svæðinu.

Flugáætlun Icelandair verður í ár um 10% umfangsmeiri en á síðasta ári og er áætlað er að farþegar verði um 4,5 milljónir. Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8-flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757-gerð og fjórar af Boeing 767-300-gerð auk nýju vélanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK