Ingi Steinar ráðinn svæðisstjóri hjá Arion banka

Ljósmynd/Aðsend

<span>Ingi Steinar Ellertsson hefur verið ráðinn svæðisstjóri Arion banka á Norður- og Austurlandi. Hann mun jafnframt gegna stöðu útibússtjóra á Akureyri. </span>Ingi tekur við starfinu af Guðmundi Ólafssyni sem á sama tíma tekur við nýju starfi forstöðumanns þjónustustýringar fyrirtækja á viðskiptabankasviði.

<span>Í fréttatilkynningu frá Arion banka segir að Ingi Steinar hafi starfað sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá bankanum á Norður- og Austurlandi frá árinu 2016. Frá árinu 2011 leiddi hann uppbyggingu sjóða- og lífeyrissviðs hjá T Plús hf. á Akureyri. Áður starfaði Ingi á eignastýringarsviði Íslenskra verðbréfa hf., við verkefnastjórnun hjá Akureyrarbæ og á fyrirtækjasviði Tryggingamiðstöðvarinnar.​</span>

Ingi Steinar er 39 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í fjármálum og stefnumótun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann hefur jafnframt lokið prófum í verðbréfaviðskiptum og vátryggingafræðum.

<div>

<span>Arion banki starfrækir sex útibú á Norður- og Austurlandi. Þau eru á Akureyri, Blönduósi, Egilsstöðum, Sauðárkróki, Siglufirði og Ólafsfirði en auk þess starfrækir bankinn fjarvinnslu á Siglufirði og á Akureyri, m.a. tengda lífeyrisþjónustu bankans. Alls starfa ríflega 60 einstaklingar hjá Arion banka á svæðinu.</span>

</div>
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK