Samkeppni í ræstingum orðin hörð

Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri hjá Hreint ehf.
Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri hjá Hreint ehf. mbl.is/Árni Sæberg

Ræstingaþjónustan Hreint ehf. fagnar 35 ára afmæli síðar á þessu ári ásamt því að rata á ný á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki landsins. Ari Þórðarson framkvæmdastjóri er eðli máls samkvæmt sáttur við stöðu mála enda fyrirtækið í þriðja skiptið í röð á listanum. Að hans sögn gerist það ekki af sjálfu sér að ná þessum árangri, en um leið er krafan í nútímanum á þá leið að maður vandi sig við vinnu sína, í öllu tilliti. Því til stuðnings má benda á að Hreint ehf. er með Svansvottun, víðtæka gæða- og umhverfisstefnu og jafnréttisáætlun.

„Maður rekur ekki fyrirtæki, hvorki af þessari stærðargráðu né annarri, í þessu samfélagi án þess að samsvara þeim kröfum og gildum sem eru í gangi. Það blasir bara við,“ segir Ari um starfsemina. „Það vinna tæplega 200 manns hjá okkur og fyrirtækið er það stórt að þú þarft að vera með alla þessa hluti á hreinu. Á þessu ári eru enn fleiri áskoranir fyrir fyrirtæki í umhverfinu; persónuverndarlög, jafnlaunavottanir og fleira, sem ljúft og skylt er að bregðast við þótt það feli í sér ákveðna áskorun til skamms tíma litið. Þessu öllu þarf að bregðast við.“

Allt gerbreytt á 35 árum

Fyrirtækið Hreint ehf. var stofnað hinn 12. desember 1983 og er því ein elsta og um leið stærsta ræstingaþjónusta landsins. Í dag ræsta starfsmenn þess hundruð þúsunda fermetra atvinnuhúsnæðis og stjórnendur félagsins búa samanlagt yfir meira en hálfrar aldar reynslu af rekstri og stjórnun ræstingafyrirtækja. Á árinu sem er nýhafið verður Hreint ehf. svo 35 ára og Ari kímir þegar hann hugsar til baka og veltir fyrir sér breytingunum sem hafa orðið á rekstri fyrirtækisins og starfsumhverfi þess. Hann á nefnilega að baki 30 ára starfsreynslu sem stjórnandi þótt hann hafi ekki alltaf starfað sem slíkur hjá Hreint ehf. Hann hefur því ágætan samanburð frá einu tímabili til annars.

„Starfsumhverfi fyrirtækja hefur gerbreyst. Það er morgunljóst,“ segir hann. „Það eru alls konar reglur og leiðbeiningar í dag um rekstur fyrirtækja sem enginn velti fyrir sér á árum áður. Nú er ég ekki að segja að það hafi endilega verið eins og best varð á kosið, bara allt öðruvísi. Sama er að segja um ýmislegt í dag; það er ekki endilega á besta stað. Þessir hlutir eru bara í þróun og maður lærir að spila með nýjum takti ætli maður að haldast í rekstri.“

Hvað starfsvettvang Hreint ehf. varðar segir Ari helstu breytinguna þá að markaðurinn þar hefur stækkað gríðarlega.

„Fyrir 35 árum voru sárafá fyrirtæki verktakavædd í ræstingum en í dag hugsa ég að um 40% fyrirtækja láti verktaka um þrifin. Markaðurinn hefur stækkað mjög mikið og ennþá meira eftir hrun. Aðstæður breyttust mikið hjá okkur eins og öðrum eftir hrunið og hin seinni ár hefur samkeppnin aukist til mikilla muna. Í dag er eitthvað á annað hundrað fyrirtækja í ræstingum svo samkeppnin er orðin virkilega hörð.“

Það er líka eftir nokkru að slægjast á ræstingamarkaðnum, eins og Ari bendir á; ræstingamarkaðurinn er stór og verktakar sem þrífa atvinnuhúsnæði velta í kringum 10 milljörðum króna á ári.

Með áherslu á góð samskipti

Ari útskýrir í framhaldinu að leiðin sem Hreint ehf. hafi farið til að aðgreina sig á markaðnum sé meðal annars sú að hafa það bolmagn sem stór fyrirtæki á markaðnum hafa, þau ráði við verkefni í samræmi við stærð sína sem hin smærri ráði ekki við. „Geirinn hér á landi er að mér sýnist samsettur með svipuðum hætti og víðast hvar í Evrópu. Þá meina ég að um það bil 5% fyrirtækjanna eru jafnan með um 90% verkefnanna. Á móti er svo hægur vandinn að gagnálykta að 95% fyrirtækjanna skipti með sér þeim litla hluta sem eftir er. 85% af íslenskum lögaðilum eru lítil fyrirtæki, fimm manna og minni.“

Annað í þessu sambandi vekur athygli á heimasíðu fyrirtækisins. Þar stendur:

Ein megináhersla í rekstri okkar liggur í ánægjulegum, hvetjandi og gagnkvæmum samskiptum við viðskiptavini okkar og starfsfólk.“

Ari samsinnir þessu.

„Þetta er einfaldlega aðalatriðið í rekstrinum. Við höfum nýja og nýja megináherslu hjá okkur á hverju ári, eitthvað sem við reynum að láta einkenna starfsemina það árið, og á síðasta ári var einmitt áhersla á samskipti. Við finnum það einfaldlega að þar sem góð samskipti eru, þar ganga ræstingarnar betur. Eitt af því sem við höfum gert að höfuðmarkmiði er að við stefnum á að gera okkar fyrirtæki að stærsta ræstingafyrirtæki á landinu. Það byggist allt á þessum samskiptum. Ef samskipti við starfsfólk og viðskiptavini ganga ekki vel þá ganga ræstingarnar ekkert vel heldur. Góð samskipti hafa allt að segja um gang þjónustunnar.“

„Sameinuðu þjóðirnar“ í húsinu

Ari leggur áherslu á að þetta eigi alls ekkert síður við um samskiptin innanhúss. Nefnir hann að stundum sé haft á orði að fyrirtækið sé næstum eins og litlar Sameinaðar þjóðir því þar starfar fólk hvaðanæva úr heiminum.

„Hér starfar fólk frá milli 20 og 30 þjóðlöndum og það fólk talar náttúrlega ekki allt íslensku. Í því felst mikil áskorun og þess vegna eru samskiptin mjög ofarlega í huga okkar. Enda gengur sambúðin vel.“

Það eru orð að sönnu og Hreint ehf. er fyrirtæki sem helst vel á starfsfólki sínu. Til marks um það er að í desember síðastliðnum heiðraði fyrirtækið 18 starfsmenn af 200 fyrir langan og farsælan starfsaldur. „Það er fólk sem er búið að vera hjá okkur á bilinu fimm til 20 ár,“ bætir Ari við. „Starfsmannavelta er auðvitað einhver eins og gengur en fólki líður almennt mjög vel hérna.“

Það er enda eitt að vera framúrskarandi fyrirtæki og annað að ná 35 árum í samfelldum rekstri.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK