Fyrsta flug WOW air til Cincinnati

Flugtíminn frá Keflavík til Cincinnati er tæpar sjö klukkustundir en …
Flugtíminn frá Keflavík til Cincinnati er tæpar sjö klukkustundir en lent er í borginni rétt fyrir miðnætti að staðartíma. Ljósmynd/Aðsend

WOW air fór sína fyrstu ferð til Cincinnati í gærkvöldi en þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingum býðst beint flug til borgarinnar. Flogið verður þangað fimm sinnum í viku, á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum í Airbus A321 vél flugfélagsins.

„Við erum afar ánægð með að fá WOW air til CVG flugvallar. Koma flugfélagsins gerir fólki hvaðanæva úr ríkinu kleift að ferðast á vit ævintýra í Evrópu og Asíu,“ er haft eftir Candace McGraw, framkvæmdastjóra Cincinnati/Northern Kentucky flugvallar, í tilkynningu.

Cincinnati tilheyrir Ohio ríki og er þekkt fyrir arkitektúr og fjölbreytta menningu. Þar má meðal annars finna Findley markaðinn þar sem hægt er að versla matvörur og listmuni. „Over the Rhine“ hverfið er einnig vinsælt meðal ferðamanna. Hverfið er í mikilli uppbyggingu og minnir um margt á New Orleans eða Charleston hvað arkitektúr varðar. Þar má finna verslanir og kaffihús í miklu magni. Loks er dýragarður Cincinnati einnig mikil upplifun fyrir yngstu kynslóðina.

Cincinnati er ellefti áfangastaður WOW air í Bandaríkjunum en þeir verða samtals 13 í lok maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK