Hálfs milljarðs gjaldþrot Fengs

Pálmi Haraldsson.
Pálmi Haraldsson. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson
Engar eignir fundust upp í tæplega 500 milljóna króna kröfur félagsins FE-9 sem tekið var til skipta 28. maí. Félagið, sem áður hét Fengur, var í eigu Pálma Haraldssonar og átti félagið lággjaldaflugfélagið Iceland Express og Astraeus Limited.

Í árs­reikn­ingi fé­lags­ins fyr­ir árið 2017 námu skuld­ir félagsins 2,9 millj­örðum króna.  Pálmi, sem gjarnan hefur verið kenndur við Fons, átti félagið í gegnum fé­lagið Aca­demy sárl. sem er skráð í Lúx­em­borg. 

Jó­hann­es Krist­ins­son og Pálmi Har­alds­son keyptu ráðandi hlut í Ice­land Express árið 2004 af stofn­end­um flug­fé­lags­ins. Þeir voru einnig viðskipta­fé­lag­ar gegn­um Feng sem tók í nóv­em­ber 2008 yfir 92% hlut í Ice­land Express með 300 millj­óna eig­in­fjárinn­spýt­ingu. 

Ice­land Express var tekið til gjaldþrota­skipta í mars 2013, en í októ­ber árið áður hafði WOW air tekið all­an flugrekst­ur Ice­land Express yfir. Kröf­ur á hend­ur flug­fé­lag­inu námu 1,3 millj­örðum, um 300 millj­ón­ir feng­ust upp í kröf­urn­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK