Hefja flug til Orlando í desember

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. mbl.is/Rax

Flugfélagið WOW air hefur í dag sölu á flugferðum til borgarinnar Orlando í Bandaríkjunum en flug þangað hefst 18. desember og mun standa til 30 apríl. Verður flogið þrisvar í viku til flugvallarins Orlando International og tekur flugið rúmar átta klukkustundir.

Haft er eftir Skúla Mogensen, forstjóra WOW air, að Orlando sé skemmtilegur staður sem lengi hafi notið mikilla vinsælda hjá Íslendingum. „Með því að bjóða upp á flug á hagstæðum kjörum gerum við fleirum kleift að ferðast og njóta lífsins í sólinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK