Birkir Hólm ráðinn forstjóri Samskipa

Birkir Hólm Guðnason.
Birkir Hólm Guðnason. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Samskipa hefur ráðið Birki Hólm Guðnason sem forstjóra Samskipa hf. Áður starfaði Birkir í 18 ár hjá Icelandair, þar af 6 ár á erlendum mörkuðum, en hann var framkvæmdastjóri félagsins frá 2008. Ásbjörn Gíslason er nýr stjórnarformaður Samskipa.

Pálmar Óli Magnússon lætur af störfum að eigin ósk og verður viðloðandi félagið við innleiðingu nýs siglingakerfis Samskipa auk þess að vera Birki innan handar á meðan hann kemur sér fyrir í nýju starfi, að því er segir í tilkynningu. 

Ásbjörn Gíslason, stjórnarformaður Samskipa.
Ásbjörn Gíslason, stjórnarformaður Samskipa. Ljósmynd/Aðsend

 „Við höfum nýlega kynnt nýtt siglingakerfi til að sinna íslenska markaðnum enn betur. Með breytingunum stóraukum við flutningsgetu félagsins, bætum áreiðanleika þjónustunnar og eflum. Við ætlum okkur að spila öflugan sóknarbolta og auka markaðshlutdeild Samskipa. Pálmari erum við þakklát fyrir samstarfið síðastliðin ár og fyrir framlag hans til félagsins. Birki býð ég jafnframt velkominn. Ég þekki hann vel og veit að við erum heppin að fá hann með okkur í lið,“ segir Ásbjörn Gíslason, nýr stjórnarformaður Samskipa hf., í tilkynningunni. 

„Ég hef mikla reynslu af rekstrarumhverfi fyrirtækis sem starfar á alþjóðlegum markaði og fyrir mér eru sömu lögmál að verki í rekstri þessara fyrirtækja. Annars vegar erum við að tala um siglingakerfi og hins vegar leiðakerfi. Vinnan snýst að miklu leyti um að veita góða þjónustu, áreiðanleika og aðgengileika á hagkvæman máta og þar sé ég spennandi tækifæri fyrir okkar viðskiptavini. „Together we make things happen,“ er slagorð Samskipa og ég finn mig vel í því og hlakka til samstarfsins. Með bakland í stóru alþjóðlegu fyrirtæki höfum við allt sem þarf til að sækja fram af miklu afli og það verður spennandi að vera hluti af þeim vexti,“ er haft eftir Birki í tilkynninguni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK