Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, hefur keypt Bæjarins besta og bb.is ásamt léni, vefréttindum og öðrum verðmætum sem útgáfunni fylgja af BB útgáfufélagi.
Kristinn tók við rekstrinum í dag og er nýr ritstjóri útgáfunnar.
„Fréttamiðillinn mun einbeita sér að efni um Vestfirði og Vestfirðinga innan sem utan fjórðungs auk almenns fréttaflutnings, sem getur átt skírskotun um land allt. Megináhersla verður á vefinn bb.is, en blaðaútgáfa verður áfram til skoðunar og fylgst með aðstæðum á markaðnum.
Þrátt fyrir góðæri undanfarin ár hefur rekstur fjölmiðla almennt verið þungur og helstu fjölmiðlar landsins hafa gert síðasta ár upp með verulegu tapi. Af þeim ástæðum er það nokkur áskorun að takast þessi rekstur á hendur. En lykillinn að árangri liggur í því að halda útgjöldum innan þeirra marka sem tekjur leyfa. Það er gömul og gullvæg regla sem hafa skal í heiðri og því munu umsvif aukast svo skjótt sem grunnurinn stendur undir hverju sinni,“ skrifar nýr ritstjóri á bb.is.