Sameina á FME og Seðlabankann

mbl.is/Samsett mynd

Sameina á Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið. Þetta herma öruggar heimildir mbl.is og forsætisráðuneytið hefur nú staðfest.

Samkvæmt sömu heimildum hafa verið fundarhöld um málið hjá báðum stofnunum í dag.

Töluvert hefur verið rætt um mögulega sameiningu stofnana en sendinefnd á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur m.a. kallað eftir því.

Endurskoða lög um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit

Tilkynning um málið barst frá forsætisráðuneytinu um málið kl. 13:15.

Þar segir, að ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins hafi ákveðið að hefja endurskoðun lagaumgjarðar um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit.

„Fyrirliggjandi eru skýrslur sérfræðinga sem bregða birtu á ýmis viðfangsefni og tækifæri til úrbóta við framkvæmd peningastefnu og umgjörð þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits, nú síðast vinna starfshópa um endurskoðun á ramma peningastefnunnar og endurskoðun laga um fjármálaeftirlit frá því í júní sl.“

Endurskoðun þessi kallar á eftirfarandi:

  1. breytingar á lögum sem lúta m.a. að peningastefnunni, núverandi verkefnum Seðlabankans og yfirstjórn,
  2. breytingar á lögum sem lúta að fyrirkomulagi þjóðhagsvarúðar,
  3. breytingar á lögum um fjármálaeftirlit,
  4. breytingar sem lúta að varanlegu fyrirkomulagi fjárstreymistækis,
  5. breytingar á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans um verðbólgumarkmið,
  6. breytingar á verklagi í peningastefnunefnd Seðlabankans.

Sameina SÍ og FME með þeim hætti sem eflir traust

Þá segir, að meginleiðarljós vinnunnar verði að efla traust, gagnsæi og skilvirkni við yfirstjórn efnahagsmála. Miðað skuli við að viðhalda verðbólgumarkmiði sem meginmarkmiði peningastefnunnar og sjálfstæði Seðlabankans og peningastefnunefndar hans til að beita stjórntækjum til að ná því en gera viðeigandi breytingar sem efla traust og auka gagnsæi. Ennfremur skuli miðað við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skilvirkni við framkvæmd þjóðhagsvarúðar og fjármálaeftirlits. 

„Yfirstjórn þessa verkefnis verður í höndum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins sem í sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Á vegum ráðherranefndarinnar starfar verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit, skipuð af forsætisráðherra. Hún er skipuð fulltrúum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis auk tengiliða frá Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Verkefnisstjórnin skal skila drögum að lagafrumvörpum til ráðherranefndar eigi síðar en 28. febrúar 2019,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK