Stofnendurnir kaupa Íslenska gámafélagið

Jón Þórir Frantzson og Ólafur Thordersen eru nú stærstu eigendur …
Jón Þórir Frantzson og Ólafur Thordersen eru nú stærstu eigendur Íslenska gámafélagsins. Ljósmynd/Aðsend

Félag í eigu stofnenda Íslenska gámafélagsins, stjórnarformannsins Jóns Þóris Frantzsonar og Ólafs Thordersen, hefur fest kaup á meirihluta hlutafjár í félaginu og dótturfélagi þess, Vélamiðstöðvarinnar. Hefur Jón Þórir aftur tekið við sem forstjóri félagsins og Ólafur við stöðu aðstoðarforstjóra. Ólafur var áður framkvæmdastjóri þjónustusviðs félagsins.

Eftir viðskiptin eru þeir Jón Þórir Frantzson og Ólafur Thordersen jafnframt stærstu einstöku hluthafar félagsins, en í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að kaupverðið sé trúnaðarmál.

Hjá Íslenska gámafélaginu og dótturfélögum þess starfa um 300 manns, en aðalstarfsemi Íslenska gámafélagsins er almenn sorphirða og útleiga á gámum, bifreiðum og tækjum. Velta félagsins er tæpir 5 milljarðar króna, en heildareignir þess námu 5,5 milljörðum í lok árs 2017. Viðskiptavinir eru um 4.500 talsins og samanstanda af 2.800 fyrirtækjum og stofnunum, 1.700 einstaklingum og 23 sveitarfélögum.

Söluferli Íslenska gámafélagsins hófst í sumar þegar boðnir voru til sölu allir hlutir í félaginu í eigu eignarhaldsfélagsins Gufuness og framtakssjóðsins Auðar I slf. Fyrirtækjaráðgjöf Kviku hafði umsjón með söluferlinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK