Rætt við skuldabréfaeigendur um langtímalausn

Viðræður við skuldabréfaeigendur Icelandair Group standa yfir um langtímalausn í kjölfar þess að útgefanda var veitt tímabundin undanþága til 30. nóvember 2018 frá fjárhagslegum skilmálum skuldabréfa félagsins að fjárhæð 190 milljónir Bandaríkjadala og skuldabréfa félagsins að fjárhæð 23,66 milljónir Bandaríkjadala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair til kauphallarinnar en heildarvirði skuldabréfanna eru rúmir 26 milljarðar króna.

Í tilkynningu Icelandair Group í gær kom fram að ólíklegt sé að allir fyrirvarar kaupsamnings félagsins á WOW air hf. verði uppfylltir fyrir hluthafafund Icelandair Group 30. nóvember 2018. Kaupsamningurinn er jafnframt gerður með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group.

Gert er ráð fyrir að nýtt skriflegt ferli hefjist með skuldabréfaeigendum um breytingar á skilmálum skuldabréfanna í kjölfar hluthafafundar Icelandair Group 30. nóvember 2018. Kynntar verða aðgerðir til að styrkja efnahagsreikning félagsins enn frekar og tillaga að skilmálabreytingum skuldabréfa sem miða að því að ná fram langtímalausn fyrir Icelandair Group og skuldabréfaeigendur.

Upplýsingar um niðurstöður fundar með skuldabréfaeigendum

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK