Á þriðja hundrað sagt upp hjá Airport Associates

Airport Associates á Keflavíkurflugvelli er stærsti þjónustuaðili WOW air.
Airport Associates á Keflavíkurflugvelli er stærsti þjónustuaðili WOW air. mbl.is/Eggert

Alls fá 237 starfsmenn Airport Associates (APA) á Keflavíkurflugvelli, stærsta þjónustuaðila WOW air,  sent uppsagnarbréf. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.  Í morgun var greint frá því að fallið hefði verið frá kaup­um Icelanda­ir Group á Wow air. Þetta var sam­eig­in­leg niðurstaða beggja aðila. 

Fundur með starfsmönnum APA hófst kl. 16.15 í dag þar sem þeim er greint frá þeirri ákvörðun og farið yfir stöðu mála. 

Flestir starfsmannanna eru í Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis en einnig í Verslunarmannafélagi Suðurnesja, að því er segir í fréttinni. 

Sigþór K. Skúlason, forstjóri Airport Associates, segir í samtali við Víkufréttir, að hann harmi að það þurfi að grípa til svo róttækra aðgerða. Menn vonist til að geta afturkallað þessar uppsagnir sem fljótt sem auðið er. 

Þá segir Kristján Gunnarsson, formaður VSFK, að fólk sé í áfalli. Þetta sé stærsta hópuppsögn síðan bandaríska varnarliðið fór fyrir rúmum áratug. 

Höfuðstöðvar Airport Associates í Reykjanesbæ.
Höfuðstöðvar Airport Associates í Reykjanesbæ. Ljósmynd/Víkurfréttir-Páll Ketilsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK