Arion banki opnar aftur við Hagatorg

Afgreiðsla Arion banka í Garðabæ en afgreiðslan við Hagatorg verður …
Afgreiðsla Arion banka í Garðabæ en afgreiðslan við Hagatorg verður með svipuðu sniði. Ljósmynd/Aðsend

Arion banki opnar afgreiðslu við Hagatorg klukkan 9 í fyrramálið eftir gagngerar endurbætur á húsnæði bankans.

Afgreiðslan í Vesturbænum verður með svipuðu sniði og í Kringlunni og Garðabæ, að því er segir í tilkynningu.

Flestöll hefðbundin bankaþjónusta verður aðgengileg við Hagatorg. Sem dæmi verður hægt að millifæra, greiða reikninga, leggja inn og taka út íslenskar krónur í hraðbönkunum. Með hjálp fjarfundabúnaðar verður boðið upp á víðtækari þjónustu og fjármálaráðgjöf. Hraðbankar verða opnir allan sólarhringinn. 

Í tilefni opnunarinnar á morgun verður boðið upp á rjúkandi kaffi og sæta bita frá kl. 9 til 17 og öll börn fá endurskinsmerki frá Sparilandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK