Ghosn ákærður fyrir fjármálamisferli

Carlos Ghosn hefur verið ákærður fyrir fjármálamisferli.
Carlos Ghosn hefur verið ákærður fyrir fjármálamisferli. AFP

Saksóknari í Japan hefur ákært Carlos Ghosn, fyrrverandi stjórnarformann japanska bílaframleiðandans Nissan, fyrir fjármálamisferli, að því er BBC greinir frá.

Ghosn var handtekinn í nóvember og sakaður um að hafa ekki gefið rétt­ar upp­lýs­ing­ar um laun sín og fyrir að hafa notað eignir fyrirtækisins til persónulegra nota utan vinnutíma.

Ghosn, sem fór fyrir bandalagi franska bílaframleiðandans Renault og japönsku bílaframleiðendanna Nissan og Mitsubishi, hefur neitað ásökununum.

Hafa japanskir fjölmiðlar gefið í skin að Ghosn kunni að eiga frekari ákærur yfir höfði sér og að það kunni að leiða til að þess að hann verði úrskurðaður í 20 daga varðhald til viðbótar þar sem hann muni sæta yfirheyrslum.

Ákæran sem lögð var fram gegn honum í dag var fyrir rangar fullyrðingar í árlegri öryggismálaskýrslu Nissan.

Ghosn sem er brasilískur, var hug­mynda­smiður­inn á bak við banda­lag Renault, Nissan og Mitsubishi og límið sem hélt því sam­an. Honum hafði áður verið hampað fyrir að snúa rekstri Nissan við.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK