Einar og Jón Brynjar í framkvæmdastjórn Advania

Framkvæmdastjórn Advania skipa þau Ægir Már Þórisson forstjóri, Anna Björk …
Framkvæmdastjórn Advania skipa þau Ægir Már Þórisson forstjóri, Anna Björk Bjarnadóttir, Kristinn Eiríksson, Sigrún Ámundadóttir, Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Einar Þórarinsson og Jón Brynjar Ólafsson. Ljósmynd/Advania

Einar Þórarinsson og Jón Brynjar Ólafsson hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar hjá Advania. Þeir Einar og Jón Brynjar hafa báðir starfað hjá Advania um nokkurra ára skeið. Einar mun leiða nýtt svið þjónustu- og markaðsmála og Jón Brynjar verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs.

Hlutverk sviðs þjónustu- og markaðsmála er að samþætta víðtæka þjónustu félagsins og tryggja jákvæða upplifun viðskiptavina. Einar hefur starfað hjá Advania í átta ár og hefur 20 ára stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hann gegndi áður starfi forstöðumanns þjónustuupplifunar Advania. Einar er tölvunarfræðingur að mennt með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík.

Jón Brynjar hefur starfað hjá Advania í tæp fjögur ár og gegndi áður starfi forstöðumanns fjármálasviðs fyrirtækisins. Hann hefur leitt tekju- og kostnaðarskráningu Advania, uppgjörsvinnu ásamt innri og ytri greiningarvinnu. Jón Brynjar er með meistaragráðu í fjármálum og stefnumótandi stjórnun frá Copenhagen Business School.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK