Launahækkanir stjórnmálamanna út úr korti

Guðrún Hafsteinsdóttir.
Guðrún Hafsteinsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, segir stöðuna á vinnumarkaði vera grafalvarlega og að sjá megi skýr merki kólnunar í hagkerfinu. Þetta kom fram í ræðu hennar á Iðnþingi sem haldið er í Hörpu í dag en þar gagnrýndi hún einnig harðlega launahækkanir stjórnmála- og embættismanna.

„Staðan á vinnumarkaði er grafalvarleg. Eftir fordæmalausa hagsveiflu sjáum við skýr merki kólnunar í hagkerfinu - í fyrsta sinn í sjö ár. Lamandi verkföll beint ofan í þessa stöðu gætu valdið miklum skaða. Um það er ekki deilt. Því er jafnvel hótað að skaða sem mest," sagði Guðrún á Iðnþingi í dag.

Segir hún að krafan sé langt umfram það svigrún sem efnahagslífið geti boðið upp á.

„Krafan er sú að laun verði hækkuð langt umfram það svigrúm sem efnahagslífið veitir okkur. Það gengur auðvitað ekki upp - en þegar það er nefnt við fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar þá vísa þeir oft og iðulega í að þess hafi heldur ekki verið gætt við úrskurð kjararáðs,“ segir Guðrún.

„Fráleitar“ launahækkanir

Guðrún sagði enn fremur að launahækkanir stjórnmálamanna og embættismanna um rúm 40% væru út úr korti og að opinberir starfsmenn ættu aldrei að leiða launaþróunina í samfélaginu. Fordæmdi hún enn fremur þessar hækkanir.

„Launahækkanir stjórnmálamanna og embættismanna á einu bretti um rúm 40% voru algjörlega út úr korti. Opinberir starfsmenn ættu aldrei að leiða launaþróunina í samfélaginu. Á Iðnþingi 2017 fordæmdi ég þessar hækkanir í boði kjararáðs og ég fordæmi þær líka hér og nú. Þær voru fráleitar,“ sagði Guðrún.

„Atvinnulífið í landinu – undirstaðan munið þið? – verður að sjá um að leggja línur um launaþróunina. Það verður aldrei meiri velsæld í þessu landi en verðmætasköpunin gefur tilefni til. Allt annað er skammgóður vermir. Spyrjið bara þá sem voru launamenn fyrir 30 og 40 árum og voru í stanslausri baráttu við verðbólgu og lágt atvinnustig. Það vill enginn upplifa það aftur,“ sagði Guðrún.

Ekki aðeins við kjararáð að sakast

Að sögn Guðrúnar er ekki einvörðungu við kjararáð að sakast vegna þeirrar stöðu sem upp er komin á vinnumarkaði.

„Staðan á húsnæðismarkaði leikur þar stórt hlutverk enda þurfa allir þak yfir höfuðið. Ljóst er að rof hefur orðið á milli húsnæðiskostnaðar og launaþróunar vegna þess að of lítið hefur verið byggt. Þar skipta útspil ríkis og sveitarfélaga miklu máli. Samtök iðnaðarins hafa lengi barist fyrir umbótum á byggingamarkaði og áttum við okkar þátt í því að átakshópur ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins var skipaður sem lagði til umbætur í 40 liðum til að bregðast við húsnæðisvandanum. Margar þeirra snúa að vandamálum sem við höfum lengi bent á og því eru það virkilega jákvæð tíðindi að samstaða hafi náðst um lausnir,“ sagði Guðrún enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK