Það er gaman að vera hluti af lausninni

Berglind Rán Ólafsdóttir.
Berglind Rán Ólafsdóttir. Kristinn Magnússon

Orka náttúrunnar er fyrirmynd í jafnréttismálum í orkugeiranum á heimsvísu, að sögn Berglindar Ránar Ólafsdóttur nýráðins framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hún segir að umhverfismálin standi hjarta hennar næst, og segir spennandi tíma framundan hjá Orku náttúrunnar.

Berglind Rán Ólafsdóttir hóf óvænt störf sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, ON, þegar hún var ráðin tímabundið í starfið síðastliðið haust. Ráðningin kom í kjölfar þess að Bjarna Má Júlíussyni fyrrverandi framkvæmdastjóra var sagt upp störfum, en starfslok hans tengdust „tilvikum þar sem framkoma hans gagnvart samstarfsfólki var óviðeigandi“ eins og fram kom í fréttatilkynningu frá ON á sínum tíma. Áður hafði Berglind sinnt starfi forstöðumanns fyrirtækjamarkaða.

Hvernig var að hefja störf mitt í þeirri miklu umræðu sem spannst um fyrirtækið í þjóðfélaginu á þessum tíma?

„Það er ekki hægt að draga fjöður yfir þá staðreynd að þetta var mjög erfiður tími sem tók á alla sem vinna hérna. Þetta voru erfið mál og umfjöllunin mikil. Þarna voru persónuleg mál kollega okkar til umræðu, sem ekki var hægt að ræða í fjölmiðlum. Þegar maður horfir til baka þá reyndi þetta á margar tilfinningar. Það sem stóð upp úr hjá mér þegar frá leið, og inn á árið í ár, var hve starfsfólkið stóð þétt saman og náði að einbeita sér að verkefnunum, því það er svo stolt af því að vinna hjá ON.“

Hellisheiðarvirkjun
Hellisheiðarvirkjun Haraldur Jónasson/Hari

51% stjórnenda kvenkyns

Berglind segir að jafnréttismál hafi lengi verið í forgrunni hjá Orku náttúrunnar. „Þegar ég var ráðin inn sem forstöðumaður fyrirtækjamarkaða þá var hlutfall kvenstjórnenda hjá fyrirtækinu komið upp í 51%. Lengi á undan var búið að vinna mjög markvisst í jafnréttismálunum, og sú vinna heldur áfram. ON og móðurfélagið, Orkuveita Reykjavíkur, eru komin lengst allra fyrirtækja í orkugeiranum á Íslandi í þessum málum, og við höfum jafnvel gengið lengra en lög kveða á um að þurfi að gera.“

Berglind nefnir sem dæmi hugbúnað sem unninn var í samstarfi við ON. „Þetta er hugbúnaður sem greinir í rauntíma áhrif launaákvarðana á launajafnrétti kynjanna í öllu fyrirtækinu. Hann er þróaður í nánu samstarfi PayAnalytics og mannauðs- og jafnréttisdeildina okkar. Þetta er mjög spennandi kerfi.“

Blaðamaður heggur eftir nafninu á deildinni, mannauðs- og jafnréttisdeild. Hvernig kom þetta heiti á deildina til?

„Í haust, þegar umræðan um fyrirtækið var sem mest í fjölmiðlum, var ákveðið að fara í allsherjar úttekt á allri fyrirtækjamenningunni hjá OR og dótturfyrirtækjunum Veitum og ON, sem var mjög góð ákvörðun. Út úr þeirri úttekt komu fullt af ábendingum, og ein af þeim var að láta heiti mannauðsdeildarinnar endurspegla betur áherslurnar í jafnréttismálunum. Því var ákveðið að breyta heitinu í Mannauðs- og jafnréttisdeild. Heitið endurspeglar það hve alvarlega við tökum þessi mál.“

Hefur fleiri ábendingum úr þessari úttekt verið hrint í framkvæmd?

„Já, við fengum ábendingar um ýmsa ferla sem mætti bæta, og samanlagt nýttist þetta allt til að gera góðan vinnustað enn betri. Auk þess voru gerðar tvær vinnustaðagreiningar, önnur af Háskóla Íslands, þar sem í ljós kom að vinnustaðamenningin var góð, og svo var það okkar árlega innanhúss-vinnustaðagreining, sem leiddi í ljós að starfsfólkið hefur aldrei verið ánægðara í starfi, og konur eru sérstaklega ánægðar. Fyrirtækið er þó síður en svo fullkomið og alltaf hægt að gera betur.“

Eftir að búið var að leysa úr ýmsum málum er tengdust brottvikningu fyrrverandi framkvæmdastjórans og þegar framangreindum úttektum var lokið, var ákveðinni óvissu um framtíðina eytt. Fyrir þremur vikum var síðan tekin ákvörðun um hver myndi leiða fyrirtækið inn í framtíðina, þegar Berglind var ráðin úr hópi umsækjenda. „Núna horfum við fram á við. Næsta verkefni mitt er að byggja upp stjórnendateymi til að vinna með mér, en okkur vantar núna þrjá forstöðumenn. Það er rosalega spennandi, og það verður gaman að fylla í þessar stöður.“

Berglind segir að það sé tvennt í sínum huga sem geri það þess virði að eyða tíma sínum í raforkumálin, sem séu lykilmál og hafi aldrei verið jafn mikilvæg. „Í fyrsta lagi er rafmagnið svo mikill grunnur að lífsgæðum í landinu. Þá framleiðum við helminginn af heita vatninu sem notað er á höfuðborgarsvæðinu, og það eru mikil lífsgæði fólgin í því einnig. Þetta samfélagslega mikilvægi starfseminnar er grunnurinn í mínum huga. Hitt atriðið er svo tengingin við loftslagsmálin, sem gerir þetta allt saman enn meira spennandi.“

Vissi ekkert um rafmagn

Berglind segir að þegar hún hafi byrjað að vinna hjá Landsvirkjun á sínum tíma, þá hafi hún ekkert vitað um rafmagn eða orkugeirann. „Ég ákvað samt að sækja um. Mig langaði að breyta til, og mér var seld hugmyndin um að orkugeirinn væri mjög spennandi. Hann hefur heldur betur staðist mínar væntingar.“

Orka náttúrinnar.

Ísland er komið lengst allra þjóða í heiminum í orkuskiptunum svokölluðu, eins og Berglind bendir á, færslunni frá notkun jarðefnaeldsneytis yfir í notkun rafmagns eða annarra umhverfisvænna orkugjafa. „Aðrar þjóðir eru enn að skipta út kolum, olíu og kjarnorku, en við eigum eftir að skipta út losun frá samgöngum og haftengdri starfsemi. Loftslagsvandinn er orðinn það mikill að við verðum að grípa til aðgerða strax. Það er gaman að vera hluti af lausninni hjá ON, með alla þessa grænu orku. Fyrir utan það að skoða orkuskiptin, þá er áherslan hjá ON á að nýta auðlindina betur, að fullnýta og fjölnýta, eins og við köllum það.“

Berglind segir að jarðvarminn sé meginorkugjafinn hjá ON, og þegar jarðvarmi sé nýttur, þá losni aðrir straumar. „Nú leggjum við áherslu á að nota m.a. skiljuvatn og koltvísýring sem hvort tveggja losnar við nýtingu jarðvarmans. Í þessu tilliti höfum við sett á fót Jarðhitagarð ON við Hellisheiðarvirkjun. Þar á að vera vettvangur fyrir umhverfisvæna framleiðslu og við bjóðum frumkvöðlum og fjárfestum að vera þar með starfsemi. Í raun snýst þetta um fullnýtingu auðlindastraumanna, og áframhaldandi verðmætasköpun fyrir ON og samfélagið allt. Í gegnum þetta erum við líka að leggja mikla áherslu á nýsköpun, því hún skiptir máli til framtíðar.“

Lesa má viðtalið við Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, í heild sinni í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK