Allt miklu dýrara eftir fall WOW air

Gaman-Ferðir hafa meðal annars staðið fyrir ferðum á knattspyrnuleiki. Hér …
Gaman-Ferðir hafa meðal annars staðið fyrir ferðum á knattspyrnuleiki. Hér má sjá Þór Bæring í einni slíkri ferð. Ljósmynd/Þór Bæring

„Við reyndum allt til að bjarga félaginu,“ segir Þór Bær­ing Ólafs­son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Gaman-Ferða, í samtali við mbl.is. Ferðaskrifstofan hefur skilað inn ferðaskrifstofuleyfi sínu og er hætt starfsemi.

Þór tekur fram að ferðaskrifstofan hafi ákveðið að fara þessa leið, að skila inn leyfinu, til að viðskiptavinir hlytu ekki skaða af. Í tilkynningu frá Gaman-Ferðum kom fram að fall WOW air, sem átti 49% hlut, varð fé­lag­inu mun þyngri baggi en gert hafði verið ráð fyr­ir. 

„Við vorum með ansi mikið í gegnum WOW air og þeirra flug,“ segir Þór. Þegar flugfélagið fór í þrot í síðasta mánuði hafi verið of dýrt fyrir Gaman-Ferðir að finna flug fyrir viðskiptavini sína með öðrum flugfélögum.

„Við keyptum flug af öðrum flugfélögum og þurftum að finna aðrar leiguvélar fyrir þær ferðir sem áttu að vera með WOW air. Þetta var allt miklu dýrara og gerði það að verkum að við þurfum að biðja um rekstrarstöðvun,“ segir Þór.

Hann tekur fram að Gaman-Ferðir hafi borið lögbundnar tryggingar sem grípi inn í og endurgreiða þeim sem ekki komist í fyrirhugaða ferð. Farþegar þurfa að gera kröfu í trygg­inga­féð ra­f­rænt í gegn­um þjón­ustugátt Ferðamála­stofu til þess að fá end­ur­greiðslu. Farþegar geta einnig haft sam­band við Ferðamála­stofu. 

Ekki þörf á björgunaraðgerðum

Þór segir að rekstrarstöðvunin hafi ekki áhrif á farþega á vegum Gaman-Ferða sem staddir eru erlendis á vegum fyrirtækisins og það þurfi því ekki að skipuleggja neinar björgunaraðgerðir.

Alls störfuðu 14 hjá Gaman-Ferðum en ferðaskrifstofan var stofnuð árið 2012 af Þóri Bær­ing Ólafs­syni og Braga Hinrik Magnús­syni. Ný­lega bætt­ust við Berg­lind Snæ­land og Ingi­björg Ey­steins­dótt­ir. WOW air keypti helm­ings­hlut í ferðaskrif­stof­unni árið 2015 en fyr­ir­tæk­in höfðu unnið sam­an frá stofn­un WOW air. 

„Þetta er virkilega leiðinlegt og erfitt satt að segja. En þetta hafði bara svona mikil áhrif á okkur og því miður fór þetta svona,“ segir Þór og bætir við að allt hafi verið reynt til að bjarga fyrirtækinu:

„Við reyndum að tala við samstarfsaðila, fjárfesta og fleira en það tókst því miður ekki. Við reyndum allt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK