Þórarinn hættir hjá IKEA

Þórarinn Ævarsson.
Þórarinn Ævarsson. mbl.is/Eggert

Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta staðfestir Þórarinn í samtali við mbl.is. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig frekar að svo stöddu, segir að von sé á fréttatilkynningu um málið.

Vísir greindi fyrst frá.

„Þetta er staðfest og ég býst við að vinna út þennan mánuð,“ segir Þórarinn og bætir við að von sé á tilkynningunni upp úr hádegi. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá árinu 2005, en ári síðar flutti verslun IKEA í Kauptún í Garðabæ. 

Hann vakti nýverið mikla athygli þegar hann var með erindið „Vítahringur verðhækkana á veitingum“ á morgunverðarfundi ASÍÞar gagnrýndi hann harðlega verðlagn­ingu sumra veit­ingastaða og baka­ría. 

Þórarinn starfaði í 10 ár sem bakari áður en hann kom að stofnun Dominos á Íslandi, eða frá 1993 til 2005. Síðan þá hefur hann stýrt IKEA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK