Isavia áfrýjar til Landsréttar

Vélin í eigu ALC sem er í vörslu Isavia á …
Vélin í eigu ALC sem er í vörslu Isavia á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson

Isavia hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar í máli bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins ALC þar sem þess var krafist að kyrrsetning þotu sem var á leigu hjá WOW air verði aflétt.

Þetta staðfestir Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC, við mbl.is. og áfrýjunin er einnig staðfest í tilkyninningu sem Isavia sendi frá sér nú fyrir skemmstu. Í úrskurði héraðsdóms sagði að Isavia væri heimilt að halda vélinni vegna þeirra gjalda sem henni tengjast, en ekki vegna annarra skulda WOW air við Isavia. 

Isavia hafnar þar með boði ALC frá því fyrr í dag að bandaríska fyrirtækið greiði skuldir farþegaþotunnar, sem hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá gjaldþroti WOW air þann 28. mars. 

Samkvæmt útreikningum ALC nam skuld vélarinnar um 87 milljónum króna, en WOW air skuldaði Isavia um tvo milljarða. ALC gaf Isavia frest til klukkan 16, annars teldi fyrirtækið vélina leysta með greiðslu 87 milljóna. Isavia hafnaði því hins vegar og áfrýjaði til Landsréttar.

Samræmist ekki túlkun ákvæðisins fram að þessu

Í tilkynningu sem Isavia sendi fjölmiðlum ítrekar fyrirtækið að úrskurður Héraðsdóms staðfesti að fyrirtækinu hafi verið heimilt að stöðva flugvél ALC, sem WOW air hafði til umráða, vegna ógreiddra notendagjalda flugfélagsins.

„Að mati Isavia er aftur á móti að finna misvísandi umfjöllun í forsendum úrskurðarins um túlkun á efnislegri heimild til beitingar á því ákvæði loftferðalaga sem heimilar stöðvun flugvélar,“ segir í tilkynningunni. Umfjöllunin samræmist ekki túlkun ákvæðisins fram að þessu, né heldur samræmist hún eldri dómaframkvæmd og dómafordæmum erlendis í samskonar málum, m.a. dómum sem fallið hafa í Bretlandi og Kanada.

Bendir Isavia á að lögunum hafi verið breytt í tvígang, árin 2002 og 2006. Þetta hafi m.a. verið gert til að mæta því að flugfélög hafa í auknum mæli leigt flugvélar til rekstursins frekar en að eiga þær sjálf. Vilji löggjafans er því skýr að mati Isavia.

Raskar forsendum gjaldtöku

„Fjölmörg flugfélög sem nýta sér þjónustu Keflavíkurflugvallar eiga og hafa til umráða marga tugi eða hundruð flugvéla. Ef að sú forsenda úrskurðarins stendur, að beiting ákvæðisins eigi eingöngu við um hverja flugvél fyrir sig, mun það í grundvallaratriðum raska þeim forsendum sem gjaldtaka félagsins byggir á þegar kemur að innheimtu notendagjalda. Þessu ákvæði er meðal annars ætlað að koma í veg fyrir möguleika á misnotkun,“ segir í yfirlýsingunni.

„Verulegir hagsmunir eru tengdir núverandi framkvæmd loftferðalaga. Hún auðveldar flugfélögum að taka ákvörðun um að hefja flug til landsins. Ef breyting verður á þessu gæti okkur til dæmis verið nauðugur sá kostur að óska eftir tryggingu frá þeim flugfélögum sem hyggjast hefja flug til Íslands,“ er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, starfandi forstjóri Isavia, í tilkynningunni. „Það yrði íþyngjandi fyrir flugfélög og gæti haft neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu. Isavia hefur ákveðið að kæra úrskurðinn til æðra dóms með það að markmiði að fá forsendum hans breytt.“

Isavia fallist því ekki á þá kröfu eiganda vélarinnar að fá hana afenta gegn greiðslu skulda sem til hafa orðið vegna hennar einnar, enda telur fyrirtækið það ekki samræmast „fyrri framkvæmd og skýru orðalagi lagaákvæðisins“.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK