18% færri í Airbnb-gistingu

Fleiri þúsund Airbnb-íbúðir eru á Íslandi.
Fleiri þúsund Airbnb-íbúðir eru á Íslandi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Heildarfjöldi greiddra gistinátta í apríl dróst saman um 6% milli 2018 og 2019. Munar þar mest um staði sem miðla gistingu gegnum Airbnb og svipaðar síður, þar sem fækkunin var 18%. Einnig var 3,7% samdráttur á hótelum og gistiheimilum og 2,5% fækkun á öðrum tegundum gististaða. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands.

Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 504.000 í apríl síðastliðnum, en þær voru um 536.000 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 336.000. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 87.000 og um 80.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 7.000, og um 25.000 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu. Áætlaðar tölur um fjölda gistinátta, utan hefðbundinnar gistináttaskráningar, eru bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af frekari upplýsingum um framboð og nýtingu staða sem miðla gistingu gegnum Airbnb og veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.

14% fækkun á hótelum á höfuðborgarsvæðinu 

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 265.400, sem er 5% fækkun frá sama mánuði árið áður. Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 25.100 (-14,3%), en fjölgaði í öllum öðrum landshlutum. Fjölgunin á landsbyggðinni nam um 10.000 gistinóttum (9,5%) sem dreifðust tiltölulega jafnt milli allra landshluta. Um 56% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 149.900.

Á tólf mánaða tímabili, frá maí 2018 til apríl 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.415.000, sem er 3% aukning miðað við sama tímabil árið áður.

Flestir frá Bandaríkjunum 

Herbergjanýting í apríl 2019 var 48,6%, sem er lækkun um 5,7 prósentustig frá apríl 2018 þegar hún var um 54,4%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,6% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í apríl var best á Suðurnesjum, eða 58,9%.

Um 86% gistinátta á hótelum var skráð á erlenda ferðamenn, eða 229.000 sem er 2% færra en í apríl 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (66.100), þar á eftir koma Bretar (36.600) og Þjóðverjar (19.700) en gistinætur Íslendinga voru 36.400.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK