Elkem í 40 ár á Íslandi

Norðurál og Elkem eru stærstu fyrirtækin á Grundartanga.
Norðurál og Elkem eru stærstu fyrirtækin á Grundartanga. mbl.is/Árni Sæberg

Elkem Ísland fagnar 40 ára afmæli í dag en verksmiðjan er ein stærsta kísilmálmverksmiðja heims og leggur áherslu á að framleiða kísilmálm á sjálfbæran hátt.

Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust árið 1977 en fyrsti ofninn var gagnsettur árið 1979, fyrir fjörutíu árum. Í dag framleiðir Elkem Ísland og selur hágæðakísilafurðir úti um allan heim.

„Undanfarin ár hefur framleiðsla á sérvöru aukist til muna umfram staðalkísilmálm, ávallt með áherslu á sjálfbæra framleiðslu. Elkem Ísland hefur, fyrst stórra iðnfyrirtækja á Íslandi, lofað íslensku þjóðinni að verða kolefnishlutlaust framleiðslufyrirtæki fyrir árið 2040 og hefur birt vegvísi að því marki,“ segir í tilkynningu.

Í verksmiðjunni starfar fjöldi starfsmanna og verktaka. Stór hluti starfsmanna Elkem Íslands hefur unnið hjá fyrirtækinu lengur en 10 ár og margir lengur en 30 ár, nokkrir hafa m.a.s. starfað hjá fyrirtækinu öll 40 árin.

„Við eflum starfsfólkið okkar að því marki að það verði eftirsóttir starfskraftar annars staðar og við komum þannig fram við starfsfólkið okkar að það sækist ekki eftir því að vinna annars staðar. Fólkið okkar, þekking þess og umbóta- og nýsköpunarmenningin sem við höfum skapað er stærsta samkeppnisforskotið sem við höfum gagnvart þeirri samkeppni sem við stöndum frammi fyrir á heimvísu á hverjum degi,“ segir Gestur Pétursson, forstjóri Elkem Ísland, í fréttatilkynningu.

Elkem á Íslandi.
Elkem á Íslandi.

Framleiðsla Elkem Ísland snýst að miklu leyti um að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins, þar sem mikil spurn er eftir sértækum, hágæðakísilmálmi fyrir rafmagnsbíla og vindmyllur, sem og rafmótora sem má finna í venjulegum heimilistækjum eins og þurrkurum, þvottavélum, ísskápum og ryksugum sem eru með orkunýtingarstuðul A+ eða hærra.

„Elkem Ísland framleiðir sérvöru sem skiptir máli fyrir umhverfisvænni tækni sem notar minna jarðefnaeldsneyti, og leggjur því sín lóð á vogarskálarnar við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu,“ segir enn fremur í tilkynningu en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra heimsótti Elkem Ísland í morgun í tilefni af afmælinu og í dag er samstarfsmönnum, fjölskyldum, vinum og nágrönnum boðið í rútuferð um verksmiðjuna. Eins eru skemmtanir með vísindaívafi, fyrir börn jafnt sem fullorðna. Til að fagna fjölbreytileika Elkem verður matur í boði frá ýmsum heimshornum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK